Ég var í Bandaríkjunum og ætlaði að fara með litla frænda minn í Disneyland þegar ég ákvað að fíflast aðeins í greyinu. Ég keyrði með hann upp að einhverjum gömlum brunarústum “in the middle of nowhere” og sagði: “Æ NEI, það hefur kviknað í Disneyland!!!”. Þá fór krílið að HÁÁÁgráta og sá drauma sína falla eins og spilaborgir fyrir framan nefið á honum. Ég ætlaði að segja honum að þetta væri bara grín, hugga hann og fara svo með hann í alvöru Disneyland………….. en klukkan var orðin svolítið margt……