Það var ung og falleg stúlka sem var svo niðurdregin og hrygg að hún ákvað að
binda endi á þetta allt og fyrirfara sér með því að stökkva í höfnina.
Hún stóð á hafnarbakkanum og þegar hún ætlaði að stökkva kemur til hennar ungur
sjómaður og spurði hana hvers vegna hún væri að gráta.
Hún sagðist ætla að fyrirfara sér. Honum fannst það synd og sagði við hana að
hún hefði mikið að lifa fyrir. “Skipið mitt siglir til Ameríku á morgun, ef þú
vilt skal ég lauma þér með. ” Hann færði sig nær stúlkunni og tók utan um hana
og hvíslaði að henni,“ ef þú verður góð við mig verð ég góður við þig”.
“Já” sagði stúlkan “hverju hef ég að tapa? ” Um nóttina laumaði hann henni um
borð í skipið og faldi hana í einum björgunarbátnum. Hann færði henni annar
slagið mat og drykk og í hvert skipti elskuðust þau heitt og innilega.
Þrem vikum seinna var skipstjórinn á venjulegri eftirlitsferð og fann hana í
björgunarbátnum. Hann spurði hana hvað hún væri að gera þarna.
Hún sagði honum eins og var að sjómaðurinn væri að lauma henni til Ameríku en í
staðinn svæfi hún hjá honum. Þá sagði skipstjórinn:


“Þú hefur verið plötuð laglega núna, þetta er Herjólfur.”