Þær fréttir bárust í vikunni frá Kína að fornleifafræðingar hefðu grafið 1.000 m niður í jörðina og fundið koparvíra. Kínversk stjórnvöld segja að þetta sýni svo að ekki verði um villst að Kínverjar hafi verið búnir að finna upp símann fyrir 1.000 árum.

Daginn eftir bárust þær fréttir frá Þýskalandi að fronleifafræðingar hefðu grafið 1.000 m niður í jörðina og fundið ljósleiðara. Stjórnvöld þar í landi segja og Evrópusambandið líka að þetta sýni að þjóðir meginlandsins hafi fundið upp stafrænar símstöðvar fyrir 1000 árum

Í gær bárust þær fréttir frá íslandi að fornleifafræðingar hefðu grafið 1.000 m ofan í jörðina og fundið ekkert . Íslensk stjórnvöld fagna þessu mjög og segja hafið yfir allan vafa að það hafi verið íslenskir landnámsmenn sem fundu upp þráðlaust kerfi.