KRAKKAR Krakkar eru plága sama hvernig á það er litið og þar af leiðandi óþarfa drasl - eins og annað sem gengur upprétt…

Já krakkar eru ógeðsleg fyrirbæri sem ættu að vera réttdræp - eða að maður mætti allavega fá að berja þessi helvíti duglega ef þau eru fyrir manni (sem þau eru alltaf). Þessi slefandi, öskrandi óþarfi er allstaðar og útum allt gargandi upp í eyrun á manni og heimskir helvítis foreldrarnir eru í eftirdragi og láta krakkaskítinn hafa forgang… Já forgang! - Vá hvað þetta er vangefið!
Dagsönn dæmisaga: Finngálknið var statt í Max raftækjaversluninni um helgina og bað starfsmann um að leyfa sér að heyra í bíltæki nokkru. Shoppan hefur vel útbúinn bíltækjastand þar sem hægt er að fá að setjast og hlýða á tækin ef þess er óskað. Þar sátu tvær ógeðslegar stelpur á aldrinum 8 - 10 ára og fiktuðu í öllum tækjunum eins og þær ættu heima þarna og sölumaðurinn stóð eins og gufa og reyndi að tala ofan í hávaðann um leið og hann hálf slóst við stelpukvikindin um takkavöldin. Ég greip frammi fyrir honum og spurði hvort að krakkarnir fylgdu með ef maður keypti tæki - það fengist nefnilega gott verð fyrir svoleiðis á Indlandi? - Þá flissaði hann vandræðalega og hélt áfram - og krakkarnir héldu upptekknum hætti. Þá spurði ég hann hvort að þær væru á hans vegum eða hvort hann kannaðist eitthvað við þær? - Nei sagði hann en hastaði þá loks á krakkana sem stóðu upp. Því næst vindur önnur stelpan sér að mér og segir: “Má ég sjá bolinn þinn?” - Nei sagði ég og sagði henni að koma sér í burtu… “Af hverju?” Af því að þú ert leiðinlegur krakki!!! - Hreitti ég útúr mér og var afgreiðslumanninum nokkuð brugðið! Krakkaófétið var hins vegar á svipinn eins og ég hefði skaufasleigið hana í nokkar sekúndur en drullaði sér svo loks í burtu eftir að ég hafði horft beint í augun á henni með hreinni ilsku og hatri í nokkurn tíma! - Sölumaðurinn virtist mjög feginn.
HELVÍTIS DRASL! - Ég hefði viljað berja foreldrana með Balkanskri uppeldisbiblíu ef ég hefði séð þá en svo virtist sem fyrirbærin hafi gengið sjálfala… Þetta er bara eitt af mörgum dæmum um óuppalda krakka og unglinga á Íslandi… Og Finngálknið ætlar að refsa þeim öllum!!!
Ég hata krakka!

——————————————-

Fann þetta á Baggalútur og þetta var skrifað af Finngálkn og ég hrósa honum fyrir vel unna vinnu, ég er á sömu skoðun og hann