Kæri eiginmaður.
> Ég skrifa þér þetta bréf því ég hef ákveðið að fara frá þér.
> Ég hef verið þér góð eiginkona í sjö ár án þess að það hafi skilið
> nokkuð eftir.
> Þessar síðustu tvær vikur hafa verið algjört helvíti.
> Það sem fyllti mælinn var þegar yfirmaðurinn þinn hringdi í dag til að
> segja mér að þú
> hefðir sagt upp vinnunni þinni !!!!
> Hvað varstu eiginlega að hugsa ??????
> Í alvörunni, bara í síðustu viku komstu heim úr vinnu og tókst ekki einu
> sinni eftir því að ég hafði
> farið í klippingu . Ég eldaði meira að segja uppáhalds matinn þinn og
> til að reyna að
> vekja athygli þína klæddist ég glænýjum sexý náttkjól um kvöldið !!!!
> Þú hinsvegar komst heim,gleyptir í þig hluta af matnum á innan við
> mínútu, fórst svo upp í rúm þar sem þú gláptir á fótboltaleikinn í
> sjónvarpinu eins og þú gerir ALLTAF ….áður en þú steinsofnaðir!!
> Þú ert alveg hættur að segja að þú elskir mig og ert líka alveg hættur
> að snerta mig !
> Annaðhvort ertu búinn að vera að halda framhjá mér eða elskar mig
> hreinlega ekki lengur.
> Hver sem skýringin er…..þá er ég farin frá þér.
> Ps. Ekki reyna að hafa upp á mér…..því þú verður bara fyrir vonbrigðum
> því ég og Halldór bróðir þinn
> höfum ákveðið að hefja búskap saman.
> Vertu blessaður…….!
> Þín FYRRVERANDI eiginkona !
>
> Sagan endar þó ekki þarna………..
> Kæra fyrrverandi eiginkona.
> Mig langar að byrja á að segja þér að ekkert hefur glatt mig eins mikið
> lengi og að fá
> bréfið frá þér í dag.
> Það er rétt hjá þér að við höfum jú verið gift í sjö ár en að þú skulir
> halda því fram að þú hafir verið mér góð eiginkona þessi sjö ár…..er
> ansi
> langt frá sannleikanum verð ég að segja.
> Rétt skal vera rétt og til að útskýra mína hlið á málunum þá þér að
> segja horfi ég svona oft á fótboltann í sjónvarpinu til að losna við
> þurfa að hlusta á þetta stanslausa röfl í þér út af öllu og öllum !
> Verst að það
> virkar ekki eins vel og ég hefði viljað ! Og bara svo að þú vitir það þá
> tók ég
> VÍST eftir því að þú hafðir farið í klippingu í síðustu viku. En málið
> var að mér þótti klippingin
> bara svo misheppnuð og hrikalega ljót enda leistu út eins og karlmaður!
> Og þar sem móðir mín elskuleg kenndi mér að segja frekar ekki neitt ef
> maður hefði ekkert fallegt að segja.. ….ákvað ég að þegja !
> Eitthvað hefur þú svo ruglað mér saman við hann Halldór bróður þegar
> þú segist hafa eldað uppáhalds matinn minn því þér að segja hætti ég að
> borða svínakjöt fyrir rúmum sjö árum
> síðan !!! Ástæðan fyrir því að ég fór að sofa þegar þú klæddist nýja
> sexý náttkjólnum þarna um kvöldið var einfaldlega sú að þegar ég sá
> verðmiðann aftan á náttkjólnum gat ekki annað en velt því fyrir mér
> hvort það gæti virkilega verið tilviljun að kjóllinn kostaði 3.999 kr.
> og að Halldór bróðir hafði fengið lánaðan hjá mér 4 þús. kall fyrr um
> daginn!!!!!!
> En bara svo að þú vitir það þá elskaði ég þig þrátt fyrir allt og
> vonaðist til að við gætum reynt að
> laga það sem farið hafði úrskeiðis í hjónabandinu.
> Þannig að þegar ég svo uppgötvaði að ég hefði unnið í 572 milljónir í
> víkingalottoinu í dag ákvað ég
> að segja upp vinnunni minni og koma þér á óvart með því að kaupa handa
> okkur tvo miða til Jamaika.
> En þegar ég kom heim varst þú farin og mín beið bréfið frá þér.
> Ég trúi því að það sé ástæða fyrir öllu.
> Ég vona bara að þú finnir þá fyllingu í þeirri ákvörðun sem þú hefur
> tekið.
> Lögfræðingurinn minn hefur tjáð mér að með bréfi þínu hafir þú fyrirgert
> rétti þínum til lottovinningsins
> þannig að því miður fyrir þig er hann er alfarið minn.
> Vona að þú hafir það bara gott í framtíðinni.
> Já og meðan ég man………..er ekki alveg viss hvort ég sagði þér það
> nokkurntímann en Halldór bróðir er ekki
> fæddur Halldór….heldur….Halldóra.
> Vona að það komi ekki að sök.
> Með ótrúlega góðri kveðju frá Jamaika….
> Hinn moldríki og frjálsi FYRRVERANDI eiginmaður þinn!