Miðaldra maður í Ameríku keypti sér nýjan Mercedes til að halda uppá það að konan hans fór frá honum. Fór svo í bíltúr um kvöldið til að sýna sig og sjá aðra.

Topp lúgan var dregin niður og vindurinn blés í þær hárlýjur sem ennþá prýddu höfuð hans. Hann gaf hressilega í og þegar hraðamælirinn sýndi 180 sá hann skyndilega að baki sér lögguna með blikkandi ljósin.

Hmrmff… þeir ná mér aldrei á Mercedes Bens og hann gaf í… og gaf aftur í.
Þá tók skynsemin völdin og hann sagði við sjálfan sig “Hvað er eiginlega
að mér?” Hann hægði á og keyrði út í vegarkantinn.

Löggan kom að honum leit á ökuskírteinið og grandskoðaði bílinn:
“Þetta hefur verið langur vinnudagur” sagði hann “ég er að ljúka vaktinni og
það er föstudagurinn 13. Ég nenni ekki meiri pappírsvinnu, og hef engan áhuga á yfirvinnu, - ég gef þér séns.
Ef þú getur komið með góða afsökun fyrir þessum ofsahraða sem þú fórst á ,betri en ég hef nokkru sinni heyrt,þá læt ég þig sleppa í þetta sinn”
Kallinn hugsaði sig um nokkra stund og segir loks: “Kellingin stakk af fyrir nokkrum dögum með lögreglumanni. Ég var, skal ég segja þér, svo hræddur um að þú værir að skila henni”
“Góða helgi” sagði löggan
Íslenska NFL spjallsíðan