hehe einusinni vaknaði ég og langaði geðveikt í salatbar í Nóatún þannig að ég ákvað að senda bestu vinkonu minni sem á heima rétt hjá Nóatún sms og spurja hvenær Nóatún opnar… svo fæ ég alltíeinu sms til baka …VEISTU EKKI HVENÆR ÉG Á AFMÆLI… Þá kíkti ég í outboxið og ég hafði óvart sent henni.. hvenær áttu afmæli :S veit ekkert hvernig ég fór að því :S

Svo einusinni á jóladag hringdi ég í vinkonu mína og hún spyr mig hvað ég hefði verið að meina með smsinu sem ég sendi henni í gærnóttu… og ég alveg.. ha ? hvaða sms… og hún sagði að ég hefði sent henni ….“Harpa er litli strákur á enga vini” hún heitir sko Harpa og ég alveg nei þú ert eitthvað að rugla einhver annar hefur sent þér þetta og svo kíki ég í sent og þá blasir við þetta sms:S

Svo eitt í viðbót þá vaknaði ég einusinni við sms frá vinkonu minni sem stóð “og hvað með það??” og ég sendi tilbaka og hvað með hvað? og þá segir hún að ég hafði sent henni sms sem stóð NK kaffi er gott kaffihús eða eitthvað þannig :S