Í skólanum þá erum ég og vinkona mín báðar með mynd af Tommy Lee á skjánum í tölvuaðganginum okkar. En jæja, við vorum í tölvutíma og nýbúnar að kveikja á tölvunum og þá kemur strákur úr tíunda bekk og segir við strák í okkar bekk, djöfull finnst mér Tommy Lee ömurlegur. Þá snerum við okkur báðar við í einu og sögðum á nákvæmlega sama tíma, “hvernig dirfistu?.” Hljómar kannski ekkert svakalega fyndið en þetta var svona had-to-be-there-moment.
Allir hlutir eru haldnir heimþrá til jarðarinnar og þess vegna falla þeir þangað þegar tækifæri gefst.