Veðrið á Íslandi. Þetta er eins og veðrið gerist best á Íslandi, svo það er best að byrja hér. +15°C Fólkið á Spáni notar kuldaúlpur og þykka vettlinga. Íslendingar liggja í sólbaði. +10°C Frakkar reyna af vanmætti að fá kyndinguna í gang. Íslendingar planta blómum í garðana sína. +5°C Bílar á Ítalíu neita að fara í gang. Íslendingar fara að gamni sínu í bíltúr á Saab druslunni. 0°C Eimað vatn frýs. Vatnið í Hvítá verður aðeins þykkra. -5°C Fólkið í Californíu frýs næstum til dauða. Íslendingarnir grilla í síðasta sinn áður en veturinn skellur á. -10°C Bretar byrja að kynda húsin sín. Íslendingar byrja að nota langerma boli. -20°C Götusalar byrja að flýja frá Mallorca. Íslendingar enda miðsumarshátíðina. Haustið er gengið í garð! -30°C Grikkir deyja úr kulda og hverfa af yfirborði jarðar. Íslendingar hætta að þurrka þvott úti. -40°C París byrjar að gefa eftir kuldanum. Íslendingar standa í biðröð við pylsuvagnana. -50°C Ísbirnirnir byrja að flykkjast burt frá Norðurpólnum. Íslenska landhelgisgæslan frestar björgunaræfingum, í von eftir alvöru vetrarveðri. -60°C Mývatn frýs. Íslendingar leigja sér spólu og halda sig inni við. -70°C Jólasveinninn heldur í suðurátt. Íslendingarnir verða pirraðir því þeir geta ekki geymt brennivínið sitt úti. Íslenska landhelgisgæslan setur í gang björgunaræfingar. -183°C Örverur í mat lifa ekki af. Íslenskar kýr kvarta yfir handköldum bændum. -273°C Öll atóm staðnæmast vegna kulda! Íslendingar byrja að tala um að það sé kalt úti. -300°C Helvíti frýs! Ísland vinnur Eurovision!