Tveir verkfræðinemar voru að fara yfir háskólalóðina þegar annar segir: “Hvar fékkstu svona flott hjól?”

Hinn verkfræðineminn svarar: “Sko, ég var á röltinu í gær, í eigin hugarheimi, þegar falleg kona hjólar upp að mér, hendir hjólinu á jörðina, fór úr öllum fötunum og sagði ”Taktu það sem þú vilt!“.

Fyrri verkfræðineminn kinkaði kolli og sagði: ”Frábært val, fötin hefðu sjálfsagt ekki passað á þig hvort eð er!"

(Brandarinn er þýddur af mér og tekinn af Spjallborði Ultravox.org.uk)