Þetta er örugglega búið að koma svona 50 sinnum en ég bara gat ekki stillt mig :P

Bekkjarafmælið

Ósk Ýr gekk rösklega með Brand Ara í afmælið til Egils Daða. Líndís var í hendi hennar og hún var að verða of sein að sækja Leif Arnar og Loft Stein í leikskólann.

Borgar Vörður, pabbi Egils Daða, tók á móti þeim.

Þarna voru Lind Ýr, Líf Vera, Sól Hlíf, Ævar Eiður og Hreinn Bolli.

Erlendur Hreimur kom blaðskellandi innan úr stofunni og vinkonurnar

Vísa Skuld og Dís Ester fast á hæla honum.
Mýra Þoka lét lítið fyrir sér fara úti í horni.
Innan úr herbergi Egils Daða bárust ógurlegir skruðningar.

Línus Gauti, Barði Vagn og Mist Eik voru greinilega mætt. En hvar var Ríta Lín?
Fyrir utan var Sædís Líf í rauðum fólksvagni.
Hægt og sígandi nálgaðist Mýra Þoka eftir stígnum.

Ilmur Blær var einnig sein fyrir og þegar hann var kominn var loks hægt að byrja.