ok ég á vin sem er svo misheppnaður að það er alvarlegt!

1. það var stórt hlaup í skólanum og allir tóku þátt þá auðvitað klessir hann á ljósastaur!

2. Einu sinni í matsalnum missti hann kartöflu eða ekkað í buxurnar svo það kom smá blettur, hann gat ekki bara látið hann vera svo hann tók vatnsglasið og ætlaði að hella á blettinn. Nei nei hann hellir óvart yfir buxurnar og það fyndna er að það hitti ekkert blettinn og hann var rennblautur!

3. Ok hann æfir gólf, einn dag eru þau inni að horfa á Tiger í gólfi… það kemur að því að hann(Tiger) er langt frá holunni og er að fara að pútta þegar vinur minn segir heyriði ef hann nær þessu labba ég þangað(hann bendir útum gluggan lengst í burtu)þau voru bara ok! Tiger nær því! Hann bara fokk! svo er annað prútt strax eftir hinu svo vinur minn segjir okok double or nothing ef hann nær labba ég þangað!(bendir ca. 300 metra)þau bara ok! hvað haldiði?? Hann Tiger nær essu! hahah

4. einu sinni vorum við vinirnir að taka stuttmynd hann átti að drepa einn og átti að fá tómatsósu framan í sig þegar hann drepur náungan… neinei við fáum einhverja lélega stelpu í að skvetta essu framan í hann og tómatsósan fer yfir öll fötin nema andlitið! Tvisvar!! svo ok þegar við löbbum heim er hann bara í peysu(ís kalt!) með tómatsósu allstaðar svo eru buxurnar alltaf að detta niður um hann því að hann gleymdi belti! Þegar hann kemur heim er hann læstur úti!

þetta eru bara nokkur dæmi um þennan dreng…