Tveir menn í Alabama fengu þá góðu hugmynd að nota banvænan snák sem bolta til að henda á milli. Eftir að hafa hent slöngunni nokkrum sinnum og verið bitnir nokkrum sinnum lét annar lífið og hinn var fluttur alvarlega slasaður á spítala.

Þannig var að nokkrir starfsmenn í buxnaverksmiðju í texas fundu lykt að gasi og þar með var verksmiðjunni lokað og rafmagn tekið af. Fengnir voru tæknimenn til að gera við gaslekann og vildi svo skemmtilega til að þeir fundu gaslekann. Eitthvað fannst þeim dimmt inni og ákváðu vildi sjá betur. Annar maðurinn teygði sig í sígarettukveikjarann sinn í vasanum. Það þarf engan snilling til að vita hvað varð um þessa verksmiðju og mennina.

Svo var það maðurinn sem var á golfvellinum. Eitthvað hafði hann tapað veðmáli við félaga sinn og ákvað að þrífa punginn á sér í bolta þrífara sem er á hverjum golfvelli. Eitthvað vafðist þetta fyrir honum enda var pungurinn frekar lægri en vélin til að þrífa golfkúlurnar. Hann notaði Driver sem hann hafði eytt 300 dollurum í daginn áður til að styðja sig við. Hann kom pungnum í boltavélin og vinur hans snéri. Driverinn brotnaði að sjálfsögðu undan þunga mannsins og eistað sat eftir í vélinni. Maðurinn var að sjálfsögðu sendur á spítala einu eista færra.


Bætt við 10. janúar 2007 - 12:46
átti að vera heimsk fólk 2