Brandari sem ég sá á ensku spjallborði :p Svolítið langt síðan ég heyrði hann, og hann var á ensku en ég reyni að skrifa hann upp.

Einu sinni var maður úti að labba. Hann hataði nágrannann sinn eins mikið og hægt var. Eitt sinn í pirringnum sínum sá hann lampa á jörðinni. Hann tók hann up og nuddaði hann og andi kom út og sagði:
“Ég gef þér þrjár óskir, með því skilyrði, að það sem þú óskar þér mun nágranninn þinn líka fá, tvöfalt.”

Fyrst bað maðurinn um að fá stórt og flott hús, með 3 hæðum. Hann hljóp heim til að skoða húsið sitt- og sá þá nágrannann sinn með tvöfalt stærri og flottari hús, með sex hæðum.

Næst vildi hann fá 5 fallegustu konur í heimi í kringum sig. Hann naut þess í nokkra stund þangað til hann sá nágranann sinn með 10 fallegustu konur í heimi í kringum sig.

Þá varð maðurinn svolítið pirraður og hugsaði sig um, en glotti svo og sagði: “Ég vildi að ég hefði aðeins eitt eista.”