DBJ eða Dead Baby Jokes eru brandarar sem eru bannaðir hér á www.hugi.is/humor og má ég spyrja hver er ástæðan fyrir því?

Þessir brandarar eru kannski of grófir fyrir suma? Ekki sé ég fólk kvarta undan öllum rasistabröndurunum sem eru á síðunni.
Mörgum finnast þeir brandarar bara nokkuð spaugalegir og er ég persónulega ekkert á móti þeim.

Og að stjórnendurnir skuli segja að þeir vilji ekki sjá þetta af því þeir þurfa að skoða hvern þráð og finnast DBJ ógeðslegir. Þá er úrræðið bara að fá aðra stjórnendur sem þora. Það eru eflaust nokkrir sem eru viðkvæmir fyrir þessum húmor en það er líka engin að biðja þá aðila að skoða þetta. X sagði líka hér fyrir stuttu að hann vildi ekki hafa þá því það kemur alltaf það sama en það er alls ekki satt, það eru alltaf fleiri og fleiri DBJ að koma. Og síðan kom líka X með þetta fáranlega comment þegar einn svaraði X “Ég er stjórnandinn af þessu áhugamáli og ég ræð þessu þannig Cry me a river…”
Þetta er ekki þitt áhugamál X þetta er okkar allra! við höfum öll sent inn greinar og myndir og þræði og plús http://www.hugi.is/humor/skodanir.php?page=view&pollId=116575 þarna sögðu 45% að þeir eru skemmtilegir og 11% að þeir séu ógeðslegir og 25% finnast þeir ekki fyndir en eru alveg sama. Það er alveg hrikalega fáranlegt að banna eina tegund af bröndurum því að 11% prósent af 215 s.s. um það bil 24 manneskjur finnast þeir ógeðslegir, og börn munu ekkert koma hér og sjá þessa brandara(lol) og NEI fólk skaðast EKKI andlega við að lesa þessa brandara. Meiri hlutinn finnast þessir brandarar vera fyndnir sem minnir mig á málsháttin “Meiri Hlutinn Ræður”. Og það er líka hægt að koma með viðvörun ef þetta er DBJ eins og að skrifa [DBJ] þá vita allir að þetta eru DBJ og þá geta þeir sem finnast þeir skemmtilegir lesið þá og þeir sem finnast þér ógeðslegir bara einfaldlega EKKI skoðað þá.

Mér finnst að það eigi að leyfa “Dead Baby Jokes” aftur hér á /humor og ef þið eruð ennþá andmælt þessum bröndurum, endilega komið með góða ástæðu…

(Afsakið Stafsetningarvillurnar)

Bætt við 13. desember 2006 - 23:56
Ég veit að stjórnendunir hér eru með þessum 24 manneskjum sem eru á móti DBJ.. er þetta sangjarnt!?