Ég var að rifja upp gamlar minningar núna áðan og þá mundi ég allt í einu eftir einu atviki, þetta var eitt það mest spes móment ævi minnar.

Ég var um 4 ára lítill polli á leikskólanum Glaðheimum á Sauðárkróki fyrir um 11 árum síðan. Sagan gerist reyndar ekki þar. Ég átti heima í raðhúsum og var þar að gera ýmislegt spes. Eitt sinn var ég með vini mínum sem er að ég held ári eldri en ég, hann átti heima í götunni fyrir neðan. Ég var hjá honum.

Þar fórum við og vorum e-ð að flippa og fórum aðeins út, ég þarf svo rækilega að skíta á einhverjum tímapunkti, ég gerði mér lítið fyrir.. Ég fór í garðinn hjá nágrannanum og skeit í hann! Svo komu foreldrar þessarar vinar míns heim og koma auga á son sinn dragandi heila klósettrúllu á eftir sér og þá spyrja ,,Hvað ertu að gera við klósettrúlluna elsku kallinn minn?“

Hann: ,,Æ, ég þarf að skeina honum Eyþóri, hann var að kúka”

:D Ég er viss um að það eru ekki margir sem hafa kúkað í garðinn hjá nágrannanum ;)