ég vill segja ykkur hérna frá grillaðasta draumi sem að ég hef á æfinni dreymt.

ég á semsagt skjaldböku í alvörunni og búrið er inni í herbergi hjá mér og svona. en aftur í drauminn ég vakna í draumnum og lít í búrið hjá nemó og þar sé ég nemó með ninjaband á hausnum og með sverð á bakinu og alles, hann allann blóðugann og nálægt dauða og skelin farin að klofna og svona og búrið allt út í brotnum tannstönglum.. ég opna búrið og tek upp nemó og held honum í fangi mínu í sorg, ekki er nóg með það að hann er með ninjaband á hausnum og með sverð og svona hann gat nefnilega líka talað og hann sagði við mig í draumnum að það hefði verið ráðist á hann af tannstönglunum og hann var nærri dauða. Ekki er nóg með það á meðan ég held á nemó í fanginu að tala við hann lít ég á herbergishurðina og viti menn.. kemur ekki tugi þúsunda tannstöngla í gegnum skráfagatið, undir hurðina inn í herbergið og skjaldi stekkur úr fanginu mínu með heljarstökki og ætlar að fara að berjast en ég tek upp skjalda klæði mig i inniskó on stappa á öllum tangstönglunum og þannig vinn stríðið. og síðan lifði skjaldi þetta af og náði fullri heilsu og bla bla

síðan var það fyndið að ég vaknaði um morguninn frá svefni leit á búrið og þar sé ég nemó starandi á mig í gegnum glerið upp á steinum sínum.. það var fyndið

en hérna er hún .. með því grillaðasta sem ég veit um