Hvað þarf marga í hverju stjörnumerki til að skipta um ljósaperu?

HRÚTUR: Bara einn. Viltu gera mál úr því eða?

NAUT:Einn, en reyndu að koma nautinu í skilning um að sprungna peran sé ónýt og að það sé best að skipta um hana og að það eigi síðan að henda henni.

TVÍBURI:Tveir, en þeir skipta aldrei um peruna- þeir ræða í sífellu um hver á að skipta um hana og afhverju þarf að skipta um peruna!

KRABBI: Bara einn. En það tekur geðlækni þrjú ár að hjálpa krabbanum að komast yfir áfallið og í gegnum sorgarferlið.

LJÓN:Ljón skipta ekki um ljósaperur, en stundum fá umboðsmennirnir þeirra meyju til þess að gera það fyrir þau á meðan þau eru úti.

MEYJA: Um það bil 1.000.000 með skekkjumörkunum
-/+ ein milljón.

VOG:Humm, tvær. Eða kannski eina. Nei, annars höfum það tvær. Ef þér er sama?

SPORÐDREKI:Þessar upplýsingar eru algert leyndarmál og einungis deilt með þeim Upplýstu í Stjörnusal hinnar Eldgömlu Reglu.

BOGMAÐUR: Sólin skín, dagurinn er ungur, allt lífið er framundan og þú ert inni með áhyggjur af einhverri eldgamalli sprunginni peru?

STEINGEIT:Ég eyði ekki tíma mínum í þessa barnalegu brandara.

VATNSBERI:Sko, þú þarft að minnast þess að allt í umhverfi okkar er hrein orka svo að…

FISKAR: Ljósaperu? Hvaða ljósaperu?
Brostu og heimurinn brosir til þín :), gráttu og þú verður blautur í framan…