Þegar ég og 2 aðrir vinir mínir vorum litlir þá ætluðum við að gera pabba eins vinar míns greiða . Við ætluðum að bóna bílinn sem var í bílskúrnum hans …..ekki það að hann vissi af því :Þ

Svo fórum við inní bílskúrinn og fundum eitthvað bón og gamla klúta og byrjuðum að bóna ( Við höfðum aldrei bónað áður og vissum ekkert hvað við vorum að gera!!! )
Svo settum við á bílinn og nudduðum það svo, OG SVO HVARF ÞETTA HVÍTA BARA!!!
Við skildum ekkert í þessu og settum meira á og alveg 5 umferðir or sum!

Svo kom í ljós daginn eftir að við eiðilögðum lakkið á bílnum og það þurfti að sprauta hann aftur og ég veit ekki hvað og hvað.Hann átti hann ekki einu sinni bílinn, var bara að gera við hann fyrir annann kall :S

Jamm , maður gerir misgáfaða hlutina þegar maður er ungur =D