Maður fór til læknis vegna þess að hann var búinn að vera svo þungur á sér í langann tíma. Þegar læknirinn var búinn að skoða manninn sagði hann, “þú hefðir átt að koma miklu fyrr til mín vegna þess að þú ert dauðvona og munt deyja í nótt”. Maðurinn varð að sjálfsögðu mjög sár og eina sem hann hugsaði var hvernig hann ætti að segja konunni sinni frá þessu, en þegar heim var komið þá ákvað hann að láta bara til skarar skríða og segja henni þetta bara beint. Þegar hann hafði lokið sér af varð konan hans ekki mjög hrifin af þessum fréttum og fór að háskæla. En svo allt í einu reyf hún sig upp úr sorginni og sagði, “ég ætla að gera þetta kvöld að eftirminnilegasta kvöldi sem þú munt hafa lifað”. Og svo um kvöldmatarleitið þá hafði hún eldað fimm réttaða máltið og bæði átu svo mikið og vel að það lá við að þeim verkjaði í magann. Svo rétt eftir matinn fór konan og klæddi sig í mest kynæsandi undirföt sem hann hafði séð og ákváðu þau að gera það saman, en það endaði á gólfinu, uppi á borði, í stofunni og eldhúsinu, baðherberginu og svefnherberginu, s.s. allsstaðar þar sem þau gátu hugsað sér að gera það. En svo þegar þau höfðu lokið sér af þá sofnaði konan mjög vært, en maðurinn var í algerum vandræðum með að sofna og ákvað þá að pikka aðeins í konuna sína, “elskan mín, elskan mín” og konan snéri sér við og þau gerðu það einu sinni enn, og aftur fór á sama veg og konan sofnaði. Enn og aftur var maðurinn í vandræðum með svefninn og ákvað að pikka í konuna sína aftur, “elskan mín, yndið mitt”, þá snéri konan sín sér að manninum og sagði bálvond, “andskotans ófriður er þetta, maður fær engann svefnfrið hérna, þér er svo sem alveg sama, EKKI ÞARF ÞÚ AÐ VAKNA Á MORGUN”.

MUHAHAHAHAHAHA
“Aldrei að treysta manni með of stuttar fætur…… heilinn er of nálægt afturendanum”:-)