Um síðustu jól gaf konan mín mér vikukort í einkatímum í hverfis
heilsuræktar- stöðinni. Þó ég væri enn í frábæru formi frá því að ég
var í skólaskákliðinu. Þá ákvað ég nú að það væri ekkert svo slæm
hugmynd að prófa þetta. Ég hringdi inn og staðfesti tíma með einhverri
kallaðri Tanya, sem sagðist vera 26 ára eróbiks kennari og íþróttafata
módel. Konan mín virtist mjög ánægð með það hve mikinn áhuga ég var
kominn með á því að byrja.
Dagur eitt
Þau ráðlögðu mér að halda þessa “æfingar dagbók” til að skrá árangur
minn þessa vikuna.
Byrjaði morguninn klukkan 7:00. Erfitt að koma sér á fætur, en vel þess
virði. Þegar ég mætti á heilsuræktarstöðina beið Tanya eftir mér. Hún
er nokkurs konar gyðja, með ljóst hár og töfrandi hvítt bros. Hún sýndi
mér tækin og tók svo af mér púlsinn eftir fimm mínútur á göngubeltinu.
Henni sýndist dálítið brugðið við því hversu hár hann var, en ég held að
hafa staðið við hliðina á henni hafi bætt við tíu stigum. Naut þess að
horfa á fróbik tímann. Tanya var mjög hvetjandi þegar ég gerði
magaæfingarnar, þó að mig hafi byrjað verkja fyrr á því að halda
vömbinni inni allan tímann sem ég var að tala við hana. Þetta verður
FRÁBÆRT.
Dagur tvö
Það tók mig tvo lítra af kaffi til þess að komast í gegnum útihurðina,
en ég hafði það niður á stöð. Tanya lét mig leggjast á bakið og lyfta
þessari þungu járnslá upp í loftið. Síðan setti hún lóð á hana, í Jesú
nafni ! Fæturnir voru dálítið óstöðugir á göngubeltinu, en ég náði
heilum kílómetra. Brosið hennar gerði það þess virði. Mér líður
FRÁBÆRLEGA í vöðvunum.
Dagur þrjú
Eina leiðin fyrir mig að bursta tennurnar er með því að leggja burstann
á vaskinn og hreyfa munninn fram og aftur ofan á honum. Ég er viss um
að ég hafi fengið tvöfalt kviðslit. Það var í lagi að keyra svo lengi
sem ég reyndi ekki að stýra. Lagði ofan á Bjöllu. Tanya var dálítið
óþolinmóð við mig og sagði að öskrin í mér trufluðu hina meðlimina.
Göngubeltið gaf mér brjóstverki, svo ég reyndi Stiga Skrímslið. Því
ætti einhver að vera að búa til vél sem hermir eftir aðgerð sem varð
úrelt við uppfinningu lyftunnar?
Tanya sagði mér að reglulegar æfingar myndu auka lífsmöguleika mína. Ég
gæti ekki ímyndað mér nokkuð verra.
Dagur 4
Tanya beið eftir mér með, það glitti í vampýrutennurnar hennar. Ég get
ekkert að því gert að ég var klukkutíma of seinn. Það tók mig það
langan tíma bara að reima skóna mína. Hún vildi að ég færi að lyfta
lóðum. Ekki sjéns,Tanya. Þetta eru kallað “lóð” af einhverri ástæðu,
þú veist drekkja einhverju. Ég faldi mig inná karlaklefanum þangað til
hún sendi Láka á eftir mér. Sem refsingu setti hún mig á róðrarvélina,
hún sökk.
Dagur 5
Ég hata Tönyu meir en nokkur manneskja hefur hatað aðra í allri
mankynssögunni.
Ef það væri einhver partur líkama míns sem ekki væri stórþjáður myndi ég
kýla hana með honum. Hún hélt að það væri góð hugmynd að þjálfa
upphandleggsvöðvana mína. Ég er með fréttaskot til þín Tanya, ég er
ekki með neina helvítis upphandleggsvöðva. Og ef þú villt ekki fá
beyglur í gólfið skaltu ekki rétta mér neinar lyftistengur. Ég tek ekki
ábyrgð á skaðanum sem gæti orðið. ÞÚ fórst í sadistaskóla, það er ÞÉR
að kenna. Göngubeltið henti mér á einhvern vísindakennara, sem var
helvíti vont. Af hverju gat það ekki verið einhver mýkri, eins og
tónmenntakennari eða félagsvísindakennari?
Dagur 6
Fékk skilaboð Tönyu á símsvaranum mínum, vildi vita hvar ég væri. Mig
skorti styrkinn til þess að nota fjarstýringuna svo ég horfði á
Veðurrásina í ellefu tíma óslitið.
Dagur 7
Jæja, þá er vikan búin. Guði sé lof að hún er búin. Kannski gefur
konan mín mér eitthvað örlítið skemmtilegra næst, eins og ókeypis
tannborun hjá tannlækninum.
<br><br>Vectro
“Women might be able to fake orgasms. But men can fake whole relationships.”