Jói litli Jói litli er sá klárasti í bekknum og alltaf fyrstur að klára prófin og spurningablöðin. Svo að hann hefði nú eitthvað að gera, eftir að hann var fyrstur búinn að svara spurningarblaði kennarans, ákvað kennarinn að spyrja hann auka spurningar.

“Jói minn, þú ert nú svo klár að ég ætla að spyrja þig einnar aukaspurningar. Það eru 5 fuglar á grein, þú ert með byssu og skýtur einn fuglinn, hvað eru þá margir fuglar eftir?”

“Enginn” svarar Jói.

“Hvað meinar þú……..enginn?” spyr kennslukonan.

“Já einn drepst, dettur til jarðar og hinir fljúga í burtu,” segir Jói

Kennslukonan kinkar kolli og segir “svarið átti nú að vera 4, en mér líkar hvernig þú hugsar ”

Örstuttu seinna réttir Jói litli upp hönd. “Má ég spyrja þig einnar spurningar?”

“Endilega” segir kennslukonan

“Ókei, 3 konur standa við ísbíl og allar eru búnar að kaupa sér ís, ein af þeim sleikir ísinn, ein af þeim bítur í ísinn og ein af þeim sýgur ísinn. Hver þeirra er gift?”

Kennslukonan og segir “ eeeee…….ég veit ekki alveg , ætli það sé ekki sú sem sýgur ísinn ?…….eða eitthvað 0”

“Neeeeei” segir Jói litli, "það er sú sem er með giftingarhringinn, en mér líkar hvernig þú hugsa