Fann hann á netinu …


Gömul hjón keyra á skúnk

Eldri hjón voru á ferðalagi á húsbíl í Bandaríkjunum.



Allt í einu skýst eitthvað út á veginn og lendir undir bílnum. Þau stoppa og athuga málið og sjá að það liggur skunkur á veginum. Virðist hann vera með lífsmarki svo þau ákveða að taka hann með og fara með hann til næsta dýralæknis.



Þau taka skúnkinn og leggja á gólfið í bílnum og keyra af stað.



“Skúnkurinn skelfur”, segir konan, “ætli honum sé ekki bara kalt”.



“Settu hann þá á milli fótanna á þér”, segir maðurinn.



“…en lyktin?”, segir konan.



“Já, haltu bara fyrir nefið á honum.”
=)