Hversu marga í þínu stjörnumerki þarf til að skipta um
ljósaperu ?

HRÚTUR : Bara einn. Viltu gera mál úr því eða ?
NAUT: Einn, en reyndu að koma nautinu í skilning um að
sprungna peran sé ónýt og að það sé best að skipta um hana og að þaðeigi síðan að henda henni.

TVÍBURI: Tveir, en þeir skipta aldrei um peruna– þeir
ræða í sífellu um hver á að skipta um hana, hvernig er best að skipta um
hana og af hverju þarf að skipta um peruna !

KRABBI: Bara einn. En það tekur geðlækni þrjú ár að
hjálpa krabbanum að komast yfir áfallið og í gegnum sorgarferlið.

LJÓN: Ljón skipta ekki um ljósaperur, en stundum fá umboðsmennirnir
þeirra Meyju til þess að gera það fyrir þau á meðan þau eru úti.

MEYJA: Um það bil 1.000.000 með skekkjumörkunum +/- ein milljón.

VOG: Humm, tvær. Eða kannski eina. Nei, annars höfum
það tvær. Ef þér er sama ?

SPORÐDREKI: Þessar upplýsingar eru algert leyndarmál
og einungis deilt með þeim Upplýstu í Stjörnusal hinnar Eldgömlu Reglu.

BOGMAÐUR: Sólin skín, dagurinn er ungur, allt lífið er
framundan og þú ert inni, með áhyggjur af einhverri eldgamalli
sprunginni peru ?

STEINGEIT: Ég eyði ekki tíma mínum í þessa barnalegu brandara.

VATNSBERI: Sko, þú þarft að minnast þess að allt í
umhverfi okkar er hrein orka svo að…..

FISKAR: Ljósaperu? Hvaða ljósaperu?




____________________________________