Jónas, þessi ákaflega fallegi maður, ákvað að það væri hans hlutverk í
lífinu að kvænast fallegustu konu í heimi og eignast með henni
fallegasta
barn veraldar.
Hann byrjaði að leita að fallegustu konunni, en eftir langa og stranga,
en
árangurslausa leit á höfuðborgarsvæðinu lagði hann af stað norður í
land.
Eftir tíðindalaust ferðalag kom hann í dalverpi eitt nálægt Skagafirði
og
þar á bæ einum hitti hann bónda sem átti þrjár dætur, hver annarri
fegurri.

Jónas útskýrði fyrir bóndanum á hvaða ferð hann var og spurði bóndann
hvort

hann mætti kvænast einni af dætrum hans.
Bóndinn sagði “Þær eru allar á höttunum eftir eiginmönnum, svo þú skalt
bara
taka þá sem þér líst best á.”
Jónas fór út með elstu dótturinni. Daginn eftir spurði bóndinn hvað
honum
fyndist um hana.
“Tjah,” sagði Jónas. “Hún er bara píííínulítið, ekki svo að maður taki
neitt
eftir því, kiðfætt.”
Bóndinn kinkaði kolli og bauð Jónasi að fara út með annarri dótturinni,
svo

Jónas bauð miðsysturinni út.
Daginn eftir spurði bóndinn hvað Jónasi fyndist um hana.
“Ja,” sagði Jónas, “Hún er bara píííínulítið, ekki svo að maður taki
neitt
eftir því, rangeygð.”
Bóndinn var sammála því og bauð Jónasi að tala við yngstu dótturina og
Jónas
bauð henni út.
Daginn eftir kom Jónas hlaupandi inn og sagði “Hún er fullkomin, hreint
út
sagt fullkomin! Hún er fallegasta kona á jarðríki. Hún er sú sem ég vil
kvænast og eignast með fallegustu börn veraldar!” Og þau giftust strax
daginn eftir.
Um það bil níu mánuðum síðar fæddist lítið barn. Jónas fór á
fæðingardeildina til að sjá fallegasta barn í heimi, en þá fékk hann að
sjá

eitthvað það al-ljótasta og skakkasta og hræðilegasta barn sem hægt er
að
ímynda sér. Jónas æddi til tengdaföður síns og spurði hvernig á þessu
stæði,
miðað við hvað foreldrarnir væru báðir fallegir.
“Tjah,” sagði bóndinn, “Hún var bara píííínulítið, ekki svo að maður
tæki
neitt eftir því, ólétt þegar þú hittir hana.”