Tígurinn ægilegi

Svo var það tígísdýrið sem vaknaði og leið svona askoti vel.

Hvað um það, hann fór í morgungönguna sína og sá þá lítinn apa sem hann króaði af og öskraði til hans:
“HVER ER STÆRSTUR OG STERKASTUR HÉR Í SKÓGINUM?”

Aumingja litli apinn nötraði af hræðslu og svaraði:
“Þú af sjálfsögðu engin er sterkari en þú.”
-“Hárrétt!” sagði þá Tígri.

Skömmu síðar þá króaði hann af lítið dádýr og öskrar á það:
“HVER ER FLOTTASTUR OG STERKASTUR HÉR Í SKÓGINUM?”

Litla dádýrið nötrar svo af hræðslu að það getur varla andað og stamar:
“Ó, þú stóri Tígri, þú ert flottastur allra hér.”
-“Það er rétt!” Sagði þá Tígri.

Tígra var farið að líða deskoti vel og þar sem að hann sá hvað honum gekk vel þá röltir hann
upp að fíl einum sem er að narta í laufblöð og öskrar:
“HVER ER STÆRSTUR OG STERKASTUR ALLRAR DÝRA HÉR Í SKÓGINUM?”

Nú jæja, fíllinn tekur Tígra upp með rananum og lemur honum utan í tré og hristir hann svo
sundur og saman og endar á því að henda honum upp í nærstatt tré.

Tígrisdýrið dröslast á fætur og lítur til fílsins og segir:
“Það er nú óþarfi að brjálast svona þó að þú vitir ekki svarið.”