Jónas var í golfi með eiginkonunni þegar hann sló boltann mjög illa svo hann flaug útaf brautinni vinstra megin og endaði á bak við hús sem stóð við brautina. Konan hans sagði „Sjáðu, bæði framdyrnar og bakdyrnar eru opnar, og ef þú getur slegið boltann með smá snúningi í gegnum húsið, þá geturðu komist næstum alveg að flötinni.“

Jónas skoðaði aðstæður, ákvað að hann gæti þetta og sló boltann af öllu afli. Boltinn fór í húsið, skoppaði til baka, fór beint í höfuðið á konunni hans og drap hana á staðnum.

Nokkrum árum seinna var Jónas búinn að kvænast á ný og hann og nýja konan voru að spila golf. Aftur sló hann boltann illa og endaði bak við sama húsið. „Sko,“ sagði nýja konan, „bæði framdyrnar og bakdyrnar eru opnar, og ef þú getur slegið boltann í gegnum húsið með smá snúningi, þá geturðu komist næstum alveg að flötinni.“

„Nei,“ sagði Jónas. „Ég prófaði þetta einu sinni og endaði með tvöfaldan skolla.

<br><br><b>******************************************************************************************

I do what I do, I am who I am, if you don´t like it……PISS OFF
-psycho 2001</b>

líttu á heima síðuna mína <a href="http://kasmir.hugi.is/psycho“ target=”_blank“>hér</a>
skrifaðu mér <u><b>HATE MAIL</u></b> <a href=”http://pub.alxnet.com/guestbook?id=2197398“ target=”_blank">hérna</a
******************************************************************************************