Jónas var að koma heim úr viðskiptaferð degi á undan áætlun. Hann tók leigubíl á flugvellinum rétt eftir miðnætti og á leiðinni heim bað hann leigubílsstjórann um að vera vitni með sér, því hann grunaði konuna sína um að halda framhjá sér og bjóst við að koma að henni með öðrum manni.

Leigubílsstjórinn samþykkti það og þegar þeir komu að húsi Jónasar, þá læddust þeir báðir inn og upp í herbergi. Þar kveikti Jónas ljósið og svipti sænginni ofanaf hjónarúminu og þar lá Magga með öðrum manni.

Jónas tók upp skammbyssu og miðaði henni á höfuðið á viðhaldinu. Magga hrópaði „Ekki gera það! Ekki skjóta hann. Hann hefur verið svo örlátur við mig. Hver heldurðu að hafi borgað Corvettuna sem ég sagðist hafa keypt handa þér og hver heldurðu að hafi borgað nýja bátinn? Hann!“

Jónas leit þá á leigubílsstjórann og sagði „Hvað myndir þú gera við svona aðstæður?“

Leigubílsstjórinn brosti og sagði „Ég myndi breiða yfir hann svo hann fengi ekki kvef.“
<br><br><b>******************************************************************************************

I do what I do, I am who I am, if you don´t like it……PISS OFF
-psycho 2001</b>

líttu á heima síðuna mína <a href="http://kasmir.hugi.is/psycho“ target=”_blank“>hér</a>
skrifaðu mér <u><b>HATE MAIL</u></b> <a href=”http://pub.alxnet.com/guestbook?id=2197398“ target=”_blank">hérna</a
******************************************************************************************