Jónas var búinn að vera úti að skemmta sér með strákunum ansi lengi og þegar klukkan var að ganga fjögur þá allt í einu rann upp fyrir honum að hann hafði ekki sagt Möggu hvert hann ætlaði eftir vinnu og að hún vissi ekkert um hann. „Andskotinn sjálfur! Magga drepur mig þegar ég kem heim,“ hugsaði hann með sér.

Nú voru góð ráð dýr og á leiðinni heim lagði Jónas höfuðið í bleyti og reyndi að finna einhverja skýringu á fjarveru sinni, sem Magga myndi samþykkja. Allt í einu kviknaði á peru!

Hann hljóp að næsta símaklefa, hringdi heim til sín og sagði andstuttur „Magga elskan! Ekki borga lausnargjaldið! Ég slapp!!“
<br><br><b>******************************************************************************************

I do what I do, I am who I am, if you don´t like it……PISS OFF
-psycho 2001</b>

líttu á heima síðuna mína <a href="http://kasmir.hugi.is/psycho“ target=”_blank“>hér</a>
skrifaðu mér <u><b>HATE MAIL</u></b> <a href=”http://pub.alxnet.com/guestbook?id=2197398“ target=”_blank">hérna</a
******************************************************************************************