MAGGA:

Kærastinn minn var í dálítið furðulegu skapi þegar ég hitti hann á kránni og ég hélt það væri vegna þess að ég var dálítið sein, en hann sagði svosem ekkert um það. Samtalið var erfitt og gekk hægt, svo mér datt í hug að fara á lítinn veitingastað svo við gætum talað einslega saman. Við fórum á mjög góðan veitingastað, en hann var enn frekar þögull og það var alveg sama hvað ég gerði til að létta honum lund. Ég var farinn að halda að það væri eitthvað að mér.

Ég spurði hann, en hann sagði nei. En ég er bara alls ekki viss. Alla vega, í leigubílnum á leiðinni heim til han, þá sagði ég honum að ég elskaði hann og hann bara setti handlegginn utanum mig. Ég veit ekki hvað það átti að þýða, því hann sagði ekki það sama við mig eða neitt. Loksins komumst við heim til hans og ég var farinn að halda að hann ætlaði að segja mér upp!

Ég reyndi að spyrja hann um það, en hann kveikti bara á sjónvarpinu. Að lokum sagði ég að ég ætlaði að fara að sofa. Eftir svona tíu mínútur kom hann líka í rúmið og við elskuðumst. En hann virtist samt dálítið annars hugar svo að eftirá langaði mig helst að fara bara.

Æ, ég veit bara ekki lengur hvað hann er að hugsa. Ég meina, ætli hann sé farinn að vera með einhverri annarri?

JÓNAS:

Ferlegur dagur í vinnunni. Þreyttur. Fékk nú samt drátt.

<br><br><b>******************************************************************************************

I do what I do, I am who I am, if you don´t like it……PISS OFF
-psycho 2001</b>

líttu á heima síðuna mína <a href="http://kasmir.hugi.is/psycho“ target=”_blank“>hér</a>
skrifaðu mér <u><b>HATE MAIL</u></b> <a href=”http://pub.alxnet.com/guestbook?id=2197398“ target=”_blank">hérna</a
******************************************************************************************