Magga var búin að kaupa stóran pakka af alls konar kraftaverkasnyrtivörum sem áttu að gera hana mörgum árum yngri í útliti.

Nú sat hún fyrir framan spegilinn í marga klukkutíma og klístraði á sig, púðraði sig upp og niður, meikaði fram og aftur og teiknaði strik eftir strik af lífs og sálar kröftum. Að lokum sneri hún sér til Jónasar og sagði „Jónas, elskan, hvað lít ég út fyrir að vera gömul núna?“

Jónas horfði á hana í góða stund og sagði „Hmm, ef maður tekur húðina, þá ertu 20 ára. Hárið segir, mmm, tuttugu. Línur líkamans gefa tuttugu-og-fimm.“

„Þakka þér fyrir elskan mín, þetta er fallega sagt!“

„Bíddu aðeins, bíddu aðeins,“ sagði Jónas. „Ég er ekki búinn að leggja saman.“
<br><br><b>******************************************************************************************

I do what I do, I am who I am, if you don´t like it……PISS OFF
-psycho 2001</b>

líttu á heima síðuna mína <a href="http://kasmir.hugi.is/psycho“ target=”_blank“>hér</a>
skrifaðu mér <u><b>HATE MAIL</u></b> <a href=”http://pub.alxnet.com/guestbook?id=2197398“ target=”_blank">hérna</a
******************************************************************************************