Kennarinn bað nemendur um að koma með einhver rafmagstæki í skólann og segja frá þeim. Daginn eftir komu öll börnin með eitthvert tæki með sér.

Kennarinn spurði Dagnýju litlu „Hvað komst þú með?“

„Ég kom með vasadiskó.“

„Og til hvers er það?“ spurði kennarinn.

„Maður getur notað það til að hlusta á tónlist.“

„Það er sniðugt, Dagný. Karl, hvað komst þú með?“

„Ég kom með rafmagnsdósaopnara. Hann er notaður til að opna dósir“

„Gott hjá þér, Karl. Látum okkur sjá … Siggi. Ég sé að þú hefur ekki komið með neitt tæki með þér!“

„Jú, víst, það er úti á gangi,“ sagði Siggi.

„Hvað komstu með, Siggi minn?“ spurði kennarinn.

„Ég kom með hjarta og lungnavél af sjúkrahúsinu. Hún er notuð til að láta hjartað ganga og hún hjálpar manni að anda.“

„Nei, heyrðu mig, Siggi. Hvað sagði pabbi þinn um þetta?“

„Hann sagði AAAARRRGGGH!!!“
<br><br><b>******************************************************************************************

I do what I do, I am who I am, if you don´t like it……PISS OFF
-psycho 2001</b>

líttu á heima síðuna mína <a href="http://kasmir.hugi.is/psycho“ target=”_blank“>hér</a>
skrifaðu mér <u><b>HATE MAIL</u></b> <a href=”http://pub.alxnet.com/guestbook?id=2197398“ target=”_blank">hérna</a
******************************************************************************************