Elsku Jónas minn,

Með þessu bréfi vil ég bara óska þér og Sigga og þessari konu gleðilegra jóla og farsæls komandi árs og segja þér að hafa ekki áhyggjur af mér, þó að ég geti hvorki andað eða borðað. Það sem máli skiptir er að þú hafir gleðileg jól með þessari gálu, einhvers staðar hinum megin á landinu langt í burtu frá fársjúkri móður þinni.

Ég setti síðasta þúsundkallinn minn með þessu korti og ég vona að þú getir keypt fallega gjöf handa honum Sigga litla fyrir hann. Guð einn veit að mamma hans kaupir aldrei neitt gott handa honum. Hann er eitthvað svo horaður á myndunum, litla greyið.

Þakka þér fyrir blómin sem þú sendir mér í afmælisgjöf. ég setti þau í frystinn svo þau verði fersk og falleg í jarðaförinni minni. Og þá man ég það – við jörðuðum ömmu í síðustu viku. Ég veit að hún dó fyrir mörgum árum, en okkur Bertu frænku langaði svo að hún fengi almennilega útför að við grófum hana upp aftur og létum grafa hana með viðhöfn. Ég hefði boðið þér, en ég veit að þessi kona sem þú býrð með hefði aldrei leyft þér að fara. Ég er alveg viss um að hún hefur ekki einu sinni horft á myndbandið af gyllinæða-aðgerðinni minni sem ég sendi ykkur í fyrra.

Jæja, kæri sonur, það er kominn tími fyrir mig að skríða í rúmið. Ég týndi stafnum mínum um daginn þegar ég þurfti að berja frá mér tvo óbótamenn sem réðust að mér og ætluðu að stela veskinu mínu, en þú skalt ekki hafa áhyggjur af mér. Ég er líka farin að venjast kuldanum síðan það var skrúfað fyrir heita vatnið hjá mér og er bara þakklát, því íshrönglið í rúminu mínu deyfir bara þennan stöðuga bakverk sem ég er með.

Ekki reyna að senda mér neina peninga, ég veit að þú þarft á þeim að halda til að borga fyrir þessar sólarlandaferðir sem þú ferð í á hverju ári. Skilaðu ástarkveðju til Sigga litla frá mér og þú mátt svosem líka skila kveðju til hvað-hún-nú-heitir, þessi með dökku hársrótina sem sleit þig ungan úr faðmi mér.

Gleðileg jól

mamma
<br><br><b>******************************************************************************************

I do what I do, I am who I am, if you don´t like it……PISS OFF
-psycho 2001</b>

líttu á heima síðuna mína <a href="http://kasmir.hugi.is/psycho“ target=”_blank“>hér</a>
skrifaðu mér <u><b>HATE MAIL</u></b> <a href=”http://pub.alxnet.com/guestbook?id=2197398“ target=”_blank">hérna</a
******************************************************************************************