Sirkusstjóri auglýsti eftir ljónatemjara og fékk tvær umsóknir, frá Jónasi og ægifagurri ljósku á besta aldri.

Sirkusstjórinn sagði „Ég ætla ekki að draga neitt undan, þetta er ógurlega grimmt ljón. Hann át síðasta ljónatemjarann okkar, svo það er eins gott að þið séuð starfinu vaxin. Hérna eru tólin ykkar, stóll, svipa og byssa. Hvort ykkar vill reyna fyrst?“

Stúlkan sagði „Ég skal byrja.“ Hún snerti hvorki stólin, svipuna eða byssuna, en fór beint inn í búrið með ljóninu. Ljónið byrjaði strax að urra og hvæsa og æddi að henni með dráp í huga. Þegar ljónið var komið um það bil hálfa leið til hennar, þá tók hún af sér kápuna og stóð fyrir framan ljónið nakin og varnarlaus.

Ljónið snarstoppaði, lagðist niður, skreið á maganum til hennar og fór að sleikja á henni öklana og kálfana. Síðan hvíldi það höfuð sitt á fötum hennar og malaði.

Sirkusstjórinn var algerlega orðlaus í dálítinn tíma, en sagði svo „Svona stórkostlega sýningu hef ég aldrei í lífinu séð áður.“ ´Siðan sneri hann sér að Jónasi og sagði „Heldurðu að þú getir gert betur?“

„Ekkert mál,“ sagði Jónas. „Komdu bara ljóninu burt fyrst.“
<br><br><b>******************************************************************************************

I do what I do, I am who I am, if you don´t like it……PISS OFF
-psycho 2001</b>

líttu á heima síðuna mína <a href="http://kasmir.hugi.is/psycho“ target=”_blank“>hér</a>
skrifaðu mér <u><b>HATE MAIL</u></b> <a href=”http://pub.alxnet.com/guestbook?id=2197398“ target=”_blank">hérna</a
******************************************************************************************