Jónas dó og var kominn að Gullna Hliðinu og beiddist gistingar. Lykla-Pétur tók á móti honum og sagði við hann „Sjáðu nú til, Jónas, áður en þú hittir Guð þinn – við vorum að skoða í Bók Lífsins og þú virðist ekki hafa gert neitt merkilegt allt þitt líf, hvorki gott eða slæmt. Við erum ekki alls kostar viss um hvað við eigum að gera við þig. Getur þú sagt okkur frá einhverju sem getur hjálpað okkur að taka ákvörðun?“

Jónas hugsaði sig um í smá tíma og sagði svo „Ja, sko, einu sinni, þá var ég að aka eftir þjóðveginum og þá sá ég hvar ung stúlka hafði lent í klónum á mótorhjólagengi og þeir voru virkilega að undirbúa að ganga í skrokk á henni. Ég stoppaði bílinn, náði í felgujárnið mitt og gekk ákveðinn að foringjanum í genginu. Hann var stærðar rumur, loðinn eins og górilluapi með húðflúr allsstaðar og hring í öðrum nasavængnum. Ég byrjaði á því að slíta hringinn úr nefinu á foringjanum og öskraði síðan á hann og sagði honum að hundskast í burtu með allar ræsisrotturnar á hælunum og aldrei láta sjá sig á þessum slóðum aftur, eða þeir fengju mig að fást við!“

„Þetta var frábært!“ sagði Lykla-Pétur. „Hvenær gerðist þetta?“

Jónas leit á úrið sitt „Fyrir svona tveim mínútum.“
<br><br><b>******************************************************************************************

I do what I do, I am who I am, if you don´t like it……PISS OFF
-psycho 2001</b>

líttu á heima síðuna mína <a href="http://kasmir.hugi.is/psycho“ target=”_blank“>hér</a>
skrifaðu mér <u><b>HATE MAIL</u></b> <a href=”http://pub.alxnet.com/guestbook?id=2197398“ target=”_blank">hérna</a
******************************************************************************************