Elliheimilið var í rútuferð um Mývatnssveit og á einum staðnum þar sem stoppað var, kom ein af gömlu konunum að máli við ökumanninn á leiðinni út og sagði „Heyrðu, ökumaður, ég held að ég hafi orðið fyrir kynferðislegri áreitni!“

Ökumaðurinn lagði nú ekki mikinn trúnað á orð þeirrar gömlu, en sagði samt að hann myndi skoða málið við fyrsta tækifæri.

Seinna þenna sama dag, þegar farþegarnir voru á leið út úr rútunni við annan útýnisstað kom önnur gömul kona og sagði „Veistu, ég held að ég hafi verið áreitt kynferðislega!“

Nú sá ökumaðurinn í hendi sér að hann yrði að gera eitthvað í málinu, svo hann skellti sér aftur inn í rútuna. Þar voru nokkrir farþegar sem ekki treystu sér út og hann ákvað að fara til þeirra og athuga hvort þeir vissu eitthvað um málið.

Þá sá hann hvar Jónas gamli skreið eftir gólfinu undir sætunum, svo hann stoppaði hjá honum og sagði „Heyrðu, Jónas minn, er eitthvað sem ég get hjálpað þér með?“

Jónas leit upp og sagði „Já, drengur minn, ég er nefnileg búinn að týna hárkollunni minni og ég er að reyna að finna hana. Ég hélt að ég hefði fundið hana tvisvar, en þær voru með skiptingu í miðju, en mín er með skiptingu á hlið!“

<br><br><b>******************************************************************************************

I do what I do, I am who I am, if you don´t like it……PISS OFF
-psycho 2001</b>

líttu á heima síðuna mína <a href="http://kasmir.hugi.is/psycho“ target=”_blank“>hér</a>
skrifaðu mér <u><b>HATE MAIL</u></b> <a href=”http://pub.alxnet.com/guestbook?id=2197398“ target=”_blank">hérna</a
******************************************************************************************