Jónas bóndi átti eina brúna kú og eina hvíta. Hann langaði til að kýrnar eignuðust kálfa, svo hann bað séra Guðmund á næsta bæ að koma með nautið sitt svo það gæti þjónustað kýrnar. Séra Guðmundur kom með nautið og þeir slepptu því í girðinguna þar sem kýrnar voru. Síðan sagði Jónas Sigga litla synni sínum að fylgjast með því sem gerðist á meðan hann og Séra Guðmundur færu inn að fá sér kaffi. „Já, pabbi, já, pabbi,“ sagði Siggi.

Eftir smá tíma kom Siggi litli inn þar sem Jónas og Séra Guðmundur voru að fá sér kaffi og ræða vandamál sóknarnefndarinnar og sagði „Pabbi, pabbi!“

„Hvað er það, Siggi minn?“ sagði Jónas.

„Nautið hans Séra Guðmundar var að ríða brúnu beljunni!“ sagði Siggi.

Samtalið fjaraði út og Jónas sneri sér að Sigga litla og sagði „Siggi minn, svona segir maður ekki þegar presturinn heyrir til. Þú hefðir átt að segja að nautið hefði … til dæmis … komið brúnu kúnni á óvart. Farðu nú aftur út og fylgstu með og segðu mér ef nautið kemur hvítu kúnni á óvart.“

Siggi fór út. Eftir stutta stund æddi hann inn og kallaði „Pabbi, pabbi!“

„Já, Siggi minn,“ sagði Jónas. „Kom nautið hvítu kúnni á óvart?“

„Ja-há, ég held það nú! Hann var að ríða brúnu beljunni aftur!

<br><br><b>******************************************************************************************

I do what I do, I am who I am, if you don´t like it……PISS OFF
-psycho 2001</b>

líttu á heima síðuna mína <a href="http://kasmir.hugi.is/psycho“ target=”_blank“>hér</a>
skrifaðu mér <u><b>HATE MAIL</u></b> <a href=”http://pub.alxnet.com/guestbook?id=2197398“ target=”_blank">hérna</a
******************************************************************************************