Veiðivörðurinn við eina bestu laxveiðiá landsins tók eftir því að Jónas var óhemju fiskinn. Hann var aldrei með minna en tuttugu laxa á dag og stundum allt að fimmtíu. Þó aðrir fengju ekki nema tvo eða þrjá, þá kom Jónas í veiðihúsið á hverju kvöldi með margar kippur af stórum, fallegum laxi. Veiðivörðurinn var orðinn forvitinn og spurði Jónas hvort hann mætti koma með honum að veiða daginn eftir.

Og daginn eftir fóru þeir tveir saman að ánni. Þeir gengu lengi meðfram ánni þar til þeir komu að stórum hyl. Þar setti Jónas frá sér búnaðinn og nú setti veiðivörðurinn sig í stellingar til að fylgjast með og missa ekki af neinu.

Aðferð Jónasar var einföld. Upp úr veiðiboxinu sínu tók hann túpu af dýnamíti, kveikti í kveikiþræðinum og kastaði sprengiefninu í hylinn. Sprengingin var rosaleg og kastaði vatni og dauðum laxi langt upp á land. Dauður og deyjandi lax flaut líka upp í hylnum. Nú byrjaði Jónas á að taka upp háf og háfa upp allan laxinn í hylnum og síðan gekk hann um og týndi upp þá fiska sem höfðu kastast upp á land. Sautján stykki í allt.

Veiðivörðurinn varð alveg snældu-tjúllaður. Í fyrstu kom hann ekki upp orði af bræði, en síðan byrjaði hann að öskra og æpa. „Þeta má ekki! Ég kalla á lögregluna og læt setja þig í fangelsi! Þú færð að borga allar sektir sem hugsast getur!“

Þegar veiðivörðurinn var búinn að rífa sig oní rassgat í smá tíma, tók Jónas upp aðra túpu af dýnamíti, kveikti á henni, stakk henni í vasann á vesti veiðivarðarins og sagði „Ætlarðu að standa þarna og væla í allan dag eða ætlarðu að veiða eitthvað?“

<br><br><b>******************************************************************************************

I do what I do, I am who I am, if you don´t like it……PISS OFF
-psycho 2001</b>

líttu á heima síðuna mína <a href="http://kasmir.hugi.is/psycho“ target=”_blank“>hér</a>
skrifaðu mér <u><b>HATE MAIL</u></b> <a href=”http://pub.alxnet.com/guestbook?id=2197398“ target=”_blank">hérna</a
******************************************************************************************