Hvernig veit maður að söngvari stendur við útidyrnar ?
Hann veit ekki hvar hann á að koma inn
——————————————————————————–



Hvað fær maður ef maður singur kántrílag afturábak ?
Maður fær vinnuna aftur og konuna aftur
——————————————————————————–

Hver er munurinn á afruglara og barítón-saxófón ?
Það er hægt að stilla afruglarann

——————————————————————————–

Hvernig fær maður gítarleikara til að spila lægra ?
Setur nótur fyrir framan hann
——————————————————————————–

Hvað kallast náungi sem gjarna er í slagtogi með tónlistarmönnum ?
Trommuleikari
Afhverju eru hljómsveitarpásur aðeins í 20 mínútur ?
Svo ekki þurfi að endurþjálfa trommarann
——————————————————————————–

Trommuleikari hundleiður á trommarabröndurum ákvað að söðla um og læra á nýtt hljóðfæri.
Hann fór í hljóðfæraverslun og biður um að fá að kíkja á harmonikkur.
Nikkurnar eru þarna í horninu sagði afgreiðslumaðurinn.
Eftir að hafa skoðað og spekúlerað drykklanga stund sagði trommarinn “ Ég ætla að fá þessa stóru hvítu”
“Þú ert trommuleikari er það ekki ” segir afgreiðslumaðurinn.
“Jú hvernig vissiru það” spyr trommuleikarinn undrandi.
“þessi stóra hvíta á veggnum er ofn” svarar afgreiðslumaðurinn