Einn brandari svona til gamans:)

Þrír karlar sátu saman yfir glasi. Þeir fóru að ræða um eiginkonur sínar. Fyrst segir sá dökkhærði konan mín er svo undarleg, það var nautakjötsútsala í Hagkaup um daginn og hún keypti 50 kg af kjöti og við sem eigum ekki einu sinni frystikistu. Nú liggur allt þetta kjöt í þvottahúsinu og við komumst örugglega ekki yfir að éta það áður en það skemmist.

Þá segir sá rauðhærði – Konan mín er svo klikkuð, það var útsala á notuðum bílum um daginn og hún keypti sér Toyotu og hún er ekki einu sinni með bílpróf. Nú stendur bíllinn bara framan við húsið okkar óhreyfður.

Þá var ljóshærði karlinn farinn að veltast um af hlátri og segir við félaga sína – ykkur finnst konurnar ykkar ekki gáfulegar, þið ættuð þá að vita hvernig mín er. Hún er úti á Grikklandi með saumaklúbbnum sínum, ha, ha, ha, og hvað haldið þið að hún hafi tekið með sér, ha, ha, ha. Hún tók með sér 50 pk af smokkum og hún sem er ekki einu sinni með typpi !