Lára fór inn í gæludýrabúð og rak strax augun í glæsilegan páfagauk sem kostaði 5.000 krónur. ,,Af hverju er hann svona ódýr?“ spurði Lára. Gæludýrabúðareigandinn leit á hana og sagði:,,sko. Málið er að þessi páfagaukur hefur verið í mörg ár í vændishúsi og getur verið ansi orðljótur. Hreint hroðalega. Þess vegna er hann á útsöluprís.” Lára ákvað samt sem áður að kaupa gauksa, fór með hann heim og hengdi búrið upp í borðstofunni. Fuglinn leit í kringum sig, síðan á Láru og sagði:,,Nýtt hús, ný húsfrú .“ Konunni varð brugðið en fannst þetta síður en svo ljótt orðbragð. Nokkru síðar komu dætur Láru heim úr háskólanum og fuglinn sagði um leið: ,,Nýtt hús, ný húsfrú og nýjar hórur.” Stelpurnar voru dálítið móðgaðar en byrjuðu svo að hlæja að þessum fyndna fugli. Augnabliki síðar kemur eiginmaður Láru heim úr vinnunni. Páfagaukurinn leit á hann og sagði:, Hæ Helgi!."