Nýjir tímar

21.1.00
Tuttugu atriði sem undirstrika að þú lifir á upplýsingaöld:

Þú hefur ekki lagt kapal með alvöru spilum árum saman.
Þú ert með 15 númera lista yfir símanúmer hinna þriggja í fjölskyldunni.
Þú sendir syni þinum tölvupóst sem segir: „það er kominn matur“. Hann svarar með tölvupósti: „hvað er í matinn?“.
Þú spjallar daglega við geðþekkan ungan pilt frá Suður-Afríku en hefur ekki rabbað við nágranna þinn í næsta húsi það sem af er árinu.
Þú getur valið um það hvort þú færð kjúklingasúpuna með eða án Camfýlubakter.
Þú hefur kannað hvort hárblásarinn þinn þoli ekki örugglega árið 2005.
Amma þín hefur sent þér tölvupóst þar sem hún biður þig að senda sér JPG mynd af nýfædda barninu þínu svo hún geti notað hana í skjáhvílu sem hún er að búa til.
Þú rennir í hlað heima hjá þér og tekur upp GSM símann til að athuga hvort einhver sé heima.
Ástæða þess að þú vanrækir tengslin við gamla vini þína er sú að þeir eru ekki með netfang.
Alltaf þegar þú lýkur setningu með punkti skrifarðu óvart .is í staðinn fyrir einfaldan punkt.
Þú kaupir bækur á Netinu, en ferð í bókabúðir til að drekka kaffi og kynnast fólki.
Sögnin að elda þýðir í þínum huga að hringja í símanúmer hjá pizzustað.
Þú ætlar að hafa jólakortin þín í ár persónuleg, svo í stað þess að senda þau í tölvupósti faxarðu þau.
Þú fréttir það ekki fyrr en nýlega að fólk getur líka fengið vírussýkingu.
Þér finnst hlægilegt að áður fyrr hafi fólk selt skrattanum sál sína, en þú hefur fyrir löngu selt bankanum kennitöluna þína.
Að taka til í eldhúsinu er í þínum huga að henda tómu samlokupokunum úr aftursætinu í bílnum.
Þú leyfir syni þínum ekki að fara út að leika fyrr en hann er búinn að taka til á harða disknum hjá sér.
Vinnuveitandi þinn er Indverji. Þú hefur aldrei séð hann enda vinnurðu hjá fjarvinnslustöð í Búðardal við að svara í síma fyrir kaupfélag í Færeyjum.
Þú færð SMS skilaboð - um að þú sért rekinn úr vinnunni.
13 ára sonur þinn þénar meira á verðbréfabraski á Netinu á einni nótt en þú á heilu ári. Daginn eftir tapar hann þessu öllu og meiru til en það gerir ekkert til því hann er búinn að selja úr þér nýrað á netuppboði
Ástæðan fyrir því að þú slóst ekki garðinn í allt sumar er sú að þú hafðir ekki efni á að láta þá framkvæmd fara í umhverfismat.
Þú ferð ekki lengur í kirkju vegna þess að Guð er að sjálfsögðu kominn með heimasíðu.
Þú horfir ekki lengur á ensku knattspyrnuna, þú kaupir hana.
Maybe this world is another planet's hell.