Það þarf að lesa þenna alveg til enda, býsna góður





Jón verkfræðingur deyr og fer auðvitað upp til himna eins og allir

verkfræðingar.


Þegar þangað kemur leitar Pétur í nafnalistanum og segir svo:


“Þvímiður Jón minn, þú ert ekki ekki á listanum. Þú verður að fara

niður”.


–“En en, ég er verkfræðingur…”


“Já sorrí, en þú ert ekki á listanum !”.


Þannig að Jón er sendur niður til helvítis.


Mánuði síðar er Guð að fara yfir nafnalistana og sér að þau mistök hafa

átt sér stað að Jón verkfræðingur hafi óvart verið sendur til helvítis.


Hann bjallar í Satan og biður hann um að skila nú Jóni.


Satan segir strax, “Ekki séns, þú færð Jón sko ekki aftur, þín mistök.”


Guð er ekki sáttur og segir, “Láttu ekki svona, Jón er verkfræðingur,

hann á heima á himnum með hinum og þú veist það”.


Þá var Satan mikið niðri fyrir og sagði “Sko, áður en Jón kom var

ógeðslega heitt hérna, það var hraunstraumur hér um allt og

brennisteinsfnykur og viðbjóður. Jón breytti þessu öllu. Núna erum við

komin með loftræstingu, brýr, vegakerfi, flóðvarnagarða og ég veit ekki

hvað og hvað, allt hannað af honum.Þetta er orðið helvíti næs hérna hjá

okkur. Það er ekki séns að þú fáir hann”.


“Sko Satan, þú lætur mig fá hann aftur, eða ég fer í mál við þig !”


“-Já er það, og hvar þykist þú ætla að fá lögfræðinga…”
You only have ONE life, for gods sake live it!