Einn lagur ljóskubrandari


Það stoppaði stór trukkur á rauðu ljósi í Reykjavík. Ljóshærð kona
stekkur
> út úr bílnum sínum, hleypur að trukknum og bankar á dyrnar.
> Bílstjórinn skrúfar niður rúðuna og hlustar á hvað hún hefur að segja.
> “Hæ ég heiti Lísa og þú ert að missa hluta af hlassinu þínu.
> Bílstjórinn gerði ekkert með þetta og hélt bara áfram.
>
> Þegar trukkurinn stoppaði aftur annars staðar á rauðu ljósi, stoppaði
> stúlkan hann aftur. Hún stökk út úr bílnum sínum og bankaði á dyrnar
> hjá bílstjóranum. Aftur skrúfaði hann niður rúðuna. Eins og þau
> hefðu aldrei talað saman, sagði sú ljóshærða skýrt og greinilega: ”Hæ,
> ég heiti Lísa og þú ert að missa hluta af hlassinu þínu. Hristandi
> hausinn, hunsaði bílstjórinn hana aftur og hélt áfram niður götuna.
>
> Á þriðja rauða ljósinu, þá gerðist það sama. Eins og stormsveipur
> stökk

> ljóshærða út úr bílnum, hljóp að dyrum bílsins og bankaði. Bílstjórinn
> skrúfar niður rúðuna. Enn og aftur segir sú ljóshærða: “Hæ, ég heiti
> Lísa og þú ert að missa hluta af hlassinu þínu.”
>
> Þegar það var komið grænt ljós, keyrði trukkurinn af stað með það sama
> að næsta ljósi. En þegar hann stoppaði í þetta skiptið, dreif hann
> sig út úr trukknum og hljóp aftur að bíl ljóshærðu konunnar. Hann
> bankaði á bílrúðuna og þegar hún skrúfaði hana niður, sagði hann: “Hæ,
> ég heiti Birgir, það er vetur í Reykjavík og ég er að keyra
> SALTBÍLINN.”
You only have ONE life, for gods sake live it!