Palli litli var að labba niður eftir götunni og bíll keyrir upp að honum, bílstjórinn rennir niður gluggarúðunni. “Ef þú kemur upp í bílinn gef ég þér 100 kall og góðan brjóstsykur” Palli sagði nei og hélt áfram að ganga eftir götunni. Aðeins seinna kom sami maðurinn á sama bílnum og rúllaði aftur niður rúðunni. “ég segji þér hvað, ef þú kemur upp í bílinn gef ég þér 200 kall og tvo stóra sleikjóa”
Palli hunsaði hann og hélt áfram að ganga eftir götunni. Aftur keyrði bíllinn upp að Palla.
“Ok, síðasta tilboð, ef þú kemur upp í bílinn gef ég þér heilar 500 krónur og allt það nammi sem þú getur í þig látið” Núna stoppaði Palli, gekk hægt upp að bílnum og hallaði sér að rúðunni.
“sjáðu nú til pabbi, þú keyptir Skoda og þú verður bara að sætta þig við afleiðingarnar”