Kona nokkur var að versla í Bónus verslun í hverfinu.

Hún var búin að setja 3 lítra af léttmjólk í körfuna ásamt einum eggjabakka
með 6 eggjum, 1/2 lítra af appelsínusafa, 1/2 höfuð kínakál, kaffipakka
og bréfi af beikoni.

Talsvert drukkinn maður fyrir aftan hana í röðinni fylgdist með þegar hún raðaði
þessum hlutum á færibandið við kassann. Þegar kassadaman tók til að
lesa strikamerkin inn sagði sá drukkni hæglátlega:

“Þú ert öörrugglega einhleyp”!

Konunni gramdist þessi ummæli drukkna mannsins en fannst jafnframt
athugasemdin skondin þar sem það var vissulega rétt, hún var einhleyp.

Hún virti fyrir sér þessa sex hluti sem hún hafði keypt og sem lágu þarna á bandinu og furðaði sig á hvernig
í ósköpunum hann gæti séð þetta út, út frá svona ósköp venjulegum innkaupum.

Forvitnin varð henni um megn svo hún sagði við hann: “Þetta er vissulega hárrétt hjá þér. En hvernig í ósköpunum geturðu séð það??“

.
.
.
.
.

.

.

.
.Og drukkni maðurinn svaraði: …………..
.
.
.
.

.
.
.
.
.

.

.

.

..

.

.

.

.

.

.

”Af því að þú ert ljót!"