Bimba vaknaði um miðja nótt og áttaði sig á því að eiginmaðurinn
var ekki í rúminu. Hún smeygði sér í náttkjólinn og fór niður. Sat þá
ekki maðurinn við eldhúsborðið og húkti yfir ísköldum kaffibolla. Hann
virtist annars hugar og starði tómeygður á vegginn. Bimba sá hann þurrka
tár af kinnunum og súpa á kaffinu. - “Hvað er að ástin mín? Af hverju
siturðu hér einn um miðja nótt,” spurði hún. Addi leit upp og sagði:
“Manstu þegar við vorum að hittast á laun fyrir 20 árum, aðeins 16 ára
gömul.” - “Já, ég man vel eftir því,” sagði Bimba. - “Manstu þegar pabbi
þinn kom að okkur þar sem við vorum að elskast í aftursætinu í bílnum
mínum?” - “Já, ég man líka vel eftir því.” -“Manstu þegar pabbi þinn dró
upp byssuna, beindi henni að höfðinu á mér og sagði: Annað hvort
giftistu dóttur minni eða verður næstu 20 árin í fangelsi.” - “Já, ég
man vel eftir þessu elskan mín,” sagði Bimba og settist við hlið
eiginmannsins. Hann þurrkaði tár af hvörmunum og sagði: “Veistu… ég
hefði losnað út í dag!”
Valdi