Einu sinni voru Jesú og Lykla Pétur í golfi og þeir voru komnir á 17 holu. Flötin á sautjándu var umkringd vatni. Lykla Pétur tekur upp en Jesú ætlar að slá yfir með 7 járni. Lykla Pétur segir þá: ,Jesú minn þótt þú hafir nú gert marga ótrúlega hluti þá getur þú nú ekki drifið þarna yfir,. Jesú segir: Ef Tiger gerir það þá geri ég það. Nú hann slær kúlunni og hún fer beint í vatnið. Hann labbar á vatninu og sækir hana og slær aftur og aftur og aftur og aftur. Hann einfaldlega drífur ekki. Það var gömul kona að fylgjast með honum allann tímann og svo kemur önnur kona að henni og segir : ,Heyrðu hver er þetta sem labbar á vatninu þarna. Þá svara hinn á snögg bragði: Já þetta er nú hann Jesú kallinn en hann heldur samt að hann sé Tiger Woods.
Danskur