GRÍN: Lögfræðingar eru…

Maður nokkur gekk inn á bar alveg hundfúll og reiður.
Barþjónninn kannaðist við hann og spurði hvers vegna hann
væri svona reiður.

“Konan mín fór frá mér fyrir lögfræðing sem hún kynntist,”
segir karlinn öskureiður og hrópar upphátt, “LÖGFRÆÐINGAR
ERU HÁLFVITAR!”

Allt í einu heyrir maðurinn að kallað er aftarlega á
barnum, “Taktu þessi orð til baka góði minn!”

“Nú, ertu lögfræðingur?”, spyr maðurinn.

“Nei! En ég er hálfviti!”