Nýjustu ransóknir sýna að 100% allra reykingarmanna deyja.

Hin dæmigerði Íslendingur hefur þær einar áhyggjur af spillingu að komast ekki í hana sjálfur.

Mamma sagði að það yrði ekkert úr mér ef ég slæi öllu á frest.
Ég sagði: bíddu bara.

Peningar eru betri en fátækt þó ekki væri nema af fjárhagsástæðum.

Kynlíf er eins og bridds. Ef þú hefur ekki góðan félaga er eins gott að þú hafir góða hendi.

Ef konan þín vill læra að aka skaltu ekki standa í vegi fyrir henni.

Ef þú hættir að reykja og drekka þá lifirðu ekki lengur, það virðist bara vera lengur.

Við vorum þrír bræðurnir og allt saman strákar.

Gelgjuskeiðið er sá tími í lífi barns þegar foreldrarnir eru hvað erfiðastir.

KV: PAPA